Þörf áminning Mosfellsbæinga - hvaðan kemur auður Orkuveitunnar?

Góða greinin sem er  að finna á heimasíðu Varmársamtakanna e. Sigrúnu Pálsdóttur og er efni hennar verulega þörf áminning í umræðuna um eigarhald á náttúruauðlindum!

varmá"Nú þegar deilur standa sem hæst um Orkuveitu Reykjavíkur og aðgang að auðlindum Íslands hvarflar hugurinn óhjákvæmilega til Mosfellsbæjar en þar hvílir í iðrum jarðar eitt stærsta lághitasvæði landsins. Uppspretta 60% af heitu vatni sem Reykvíkingar nota er í Mosfellsbæ. Hitaveita Reykjavíkur keypti verðmætustu vatnsréttindi landeigenda um 1935 á verði sem borgarstjórn Reykjavíkur óx á sínum tíma í augum, þ.e. 150 þúsund kr. Fáir áttuðu sig þá á því verðmæti sem fólst í jarðhitanum. Í dag rennur auðlindin án viðkomu í bæjarsjóði Mosfellsbæjar um hitaveitulagnir Reykjavíkur. Hitaveitan á sennilega stærstan þátt í velmegun höfuðborgarbúa og því sanngirnismál að leiðrétta hlut Mosfellsbæjar. Þetta óafturkræfa afsal á endurnýjanlegum auðlindum og sú staða sem Mosfellsbær er í núna, þ.e. að vera ekki einu sinni meðeigandi í Orkuveitu Reykjavíkur, ætti að vera þörf áminning þeim sem gæta eiga auðlindarinnar í umboði almennings. Það er kaldhæðnislegt að það sveitarfélag sem drýgstan skerf leggur til hitaveitu á Reykjavíkursvæðinu njóti þess í engu umfram önnur sveitarfélög. Þvert á móti situr það uppi með ókostina sem eru hitaveitaskúrar Orkuveitunnar með tilheyrandi ónæði fyrir íbúa, náttúrugersemar s.s. gróðursæll heitur jarðvegur og hverir eru horfnir af yfirborði jarðar, Varmáin sem hægt var að baða sig í er orðin jafn köld og rigningin og til að kóróna kaldhæðnina er skipulagsmálum stjórnað af bæjaryfirvöldum sem gleymt hafa jarðsögunni, atvinnusögunni og menningarsögunni sem öll á sér þó uppsprettu í heita vatninu.

Dómur sögunnar virðist blasa við. Í sumar sóttu Varmársamtökin um styrk til Orkuveitu Reykjavíkur til að hefja jarðhitasögu sveitarfélagsins til vegs og virðingar með sýnilegum hætti á yfirborði jarðar. Umsókninni var hafnað. En burtséð frá því.
Sala á heitavatnsréttindum í Mosfellsbæ ætti að geta orðið öðrum sveitarfélögum á suðvesturhorninu sem víti til varnaðar í þeirri stefnumörkun sem nú á sér stað"  
Greinin er eftir Sigrúnu Pálsdóttir og tekin af http://www.varmarsamtokin.blog.is/blog og er nokkuð lengri. Hvet áhugasama til að kynna sér málið!

mbl.is Vilhjálmur: Vorum að nálgast niðurstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Mjög athyglisvert Valgerður. Takk fyrir þetta. Sýnir enn betur hversu mikið er í húfi hvað auðlindirnar varðar. 

Laufey Ólafsdóttir, 14.10.2007 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband