Var Jesús stjúpbarn Jóseps?

jesus01Ég er ekki  nógu vel að mér í trúarbragðafræðum til að vita svarið við þeirri spurningu hvort Jesú hafi verið stjúpbarn Jóseps?  Í fljótu bragði virðist mér að svo sé. Hvað ætli Páfi segi við þessu?

Vil ég nota tækifærið og óska fólki í öllum fjölskyldugerðum Gleðilegs árs Smile


mbl.is Lofar náttúrulegar fjölskyldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Gleðilegt ár Valgerður, hafðu það sem allra best,

Inga Lára

Inga Lára Helgadóttir, 1.1.2008 kl. 15:36

2 Smámynd: Ásgerður

Góð spurning, kann ekki svarið við henni, en ég myndi nú samt halda að hann væri stjúpsonur, svona samkvæmt mínum skilningi

Gleðilegt ár til þín og þinna, og takk fyrir það liðna.

Ásgerður , 1.1.2008 kl. 17:53

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Hvað annað, ef tekið er alvarlega að hann hafi verið sonur guðs? Ýmis fjölskyldumynstrin ...

Gleðilegt nýtt ár

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 1.1.2008 kl. 20:19

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Að´sjálfsögðu var hann stjúpbarn Jóseps ef marka má kenningar kirkjunnar. Gleðilegt ár og megi 2008 reynast þér gott og gjöfult.

Steingerður Steinarsdóttir, 2.1.2008 kl. 12:44

5 identicon

Ég held að ef Jesús var á annað borð til þá hafi hann verið sonur Jósefs. Á þessum tíma var það þannig að ef bar ákvað að giftast eða gifting var framundan þá þurfti parið að bíða og vera aðskilin í að minsta kosti eitt ár. Mín kenning er sú að þau hafi ekki getað beðið í þetta ár og barn hafi komið undir, eða að María hafi haldið framhjá Jósef. Til þess að forða því að María yrði grýtt komu þau sér saman um að segja þá sögu að Jósef hafi ekki gerst brotlegur og Maria hafi heldur ekki gerst brotleg við þessi lög. Þá kemur heilagur andi til sögunnar sem var eina leiðin til að bjarga lífi Maríu. Sem sagt að segja fólki að það hafi komið heilagur andi og getið barnið.  En þetta er jú bara kenning sem ekki er hægt að sanna né afsanna.

Valsól (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 08:55

6 Smámynd: www.zordis.com

Er ekki málið að María hafa átt stund og orðið þunguð með eðlilegum hætti, hvort sem barnið var sonur eða uppeldissonur er annað mál!

Aðalmálið er að þau veittu honum ástina og skilninginn .....  Það eru allmargar konurnar sem eiga "jesúbörn" sem njóta hins besta af uppeldisforeldrum.

Gleðilegt árið!

www.zordis.com, 4.1.2008 kl. 21:25

7 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Góðar pælingar hjá ykkur  Ég heyrði hinsvegar prest neita þessu einu sinni - án þess að rökstyðja það frekar. Sjálfsagt hefur hann átt einhverjar guðfræðilegar skýringar á því - þarf að kynna mér málið!

Valgerður Halldórsdóttir, 5.1.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband