Hver sér um áhættumat fyrir mögulega virkjun?

 

 

Nedri_thjorsa_frett_1tbl_titils Á fundi í Þjórsárverum kynnti Helgi Bjarnason fulltrúi Landsvirkjunar að HÍ kæmi að áhættumatinu sem gera yrði m.a. vegna mögulegs stíflurofs. En samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef á eftirfarandi ráðgjafahópur að annast matið; VST - Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, VGK - Hönnun, og Rafteikning. Ég sé ekki betur en a.m.k. tveir aðilar af þremur sjái einnig um umhverfismatið vegna Helguvíkur og þessir sömu aðilar eiga í Geysir Green Energy og eru að undirbúa uppbyggingu álvera um allt land ef marka má frétt frá 28. mars sl. í Fréttablaðinu. http://www.visir.is/article/2007103280017 

 

Þar segir m.a. „Hér erum við með ráðgjöf, útboð og eftirlit og undirbúum verktakaþátt framkvæmdarinnar fyrir þann markað sem er á viðkomandi stað"

 

Ég held að það sé löngu orðið tímabært hér á landi að tryggja með lögum að þeir aðilar sem sjá um mat á umhverfisáhrifum - stimpli sig út úr framkvæmdinni sjálfri og þeir megi ekki eiga fjárhagslega hagsmuni að gæta hvort sem af henni verður eða ekki.  

 

Satt að segja vona ég að þetta sé allt saman eintómur misskilningur hjá mér Frown 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sannarlega þörf og góð ábending Valgerður.

Þetta er ámóta og ef ökuníðingar tækju að sér umferðareftirlit.

Árni Gunnarsson, 23.7.2007 kl. 11:44

2 Smámynd: Gísli Gíslason

"Ég held að það sé löngu orðið tímabært hér á landi að tryggja með lögum að þeir aðilar sem sjá um mat á umhverfisáhrifum - stimpli sig út úr framkvæmdinni sjálfri og þeir megi ekki eiga fjárhagslega hagsmuni að gæta hvort sem af henni verður eða ekki.  "

 

Ég tek undir ofangreint.  Það væri öllu til góðs að svona reglur yrðu settar á.

Gísli Gíslason, 23.7.2007 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband