Hættumat vegna Urriðafossvirkjunar kynnt af hagsmunaaðilum!!

 

 

 

 

Nedri_thjorsa_frett_1tbl_titilsFulltrúar VST munu kynna áhættumat vegna Urriðafossvirkjunar í félagsheimilinu Félagslundi í kvöld, fimmtudagskvöld. Fulltrúar Landsvirkjunar funduðu með sveitarstjórn í síðustu viku og kynntu þeim drög að  áhættumatinu sjá frekar á:  (http://sudurland.is/?p=101&id=13257).

Sem sagt, þeir aðilar sem eiga  að sjá um hættumat vegna mögulegs stíflurofs eru m.a. verkfræðistofurnar VST og VGK sem eru hluti af verkfræðisamsteypunni HRV. Það má spyrja sig hvort matið sé hlutlaust þar sem framkvæmdastjóri  HRV er þeirrar skoðunar að við Íslendingar eigum að byggja hér eins og  2-3 "Reyðarfjarðarálver"!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ég vildi óska að við gætum stoppað stjórnvöld af með þessar fjárans virkjanir

Gaman að sjá þig í skólanum í dag, ég veit nú samt ekki hvort þú þekkir mig

Kveðja,

Inga Lára Helgadóttir 

Inga Lára Helgadóttir, 18.10.2007 kl. 17:37

2 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Takk sömuleiðis

Valgerður Halldórsdóttir, 18.10.2007 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband