Missti af afmælinu - miðinn var hjá pabba! Börn í stjúpfjölskyldum

skoliMeð því a skapa andrúmsloft trausts og virðingar verða til aðstæður sem allir hlutaðeigandi aðilar treysta sér til að ræða hlutina.

Það er ýmislegt sem bæta má í samskiptum heimilia og skóla og er það mín skoðun að skólar eigi að móta fjölskyldustefnu sem m.a. tekur mið af ólíkum fjölskyldugerðum.  Lítil umræða hefur t.d. verið um stjúpfjölskyldur í skólakerfiu en viðurkenning hvers og eins skiptir máli og eykur líkurnar t.d.  að skólarnir fái upplýsinar  sem þeir fá ekki í dag.

Skólinn þarf að viðurkenna að stjúpfjölskylda er hið hefðbundna fjölskylduform fyrir marga nemendur og því nauðsynlegt að tryggja fræðslu fyrir starfslið skólans um aðstæður barna í stjúptengslum. Hann þarf líka að hvetja almennt  til skilnings foreldra og barna á ólíkum fjölskyldugerðum.

Með því að horfa á báða foreldra jafn mikilvæga í lífi barnsins getur skólinn eflt samvinnu þeirra og samstöðu. Skráningarblöð skólans þarf að gera ráð fyrir báðum foreldrum og stjúpforeldrum, bjóða þarf stjúpforeldrum að taka þátt í skólastarfinu og miðla milliliðalaust upplýsingum milli heimila og skóla! Við eigum ekki að ætla börnum að vera skilaboðaskjóður - og bera miða á milli heimila.

Börn sem eiga fráskilda foreldra eiga flest  tvö heimili - og mörg hver stjúpfjölskyldur sem taka þarf mið af.

.


mbl.is Skortur á samræðu skóla við foreldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Gíslason

Málefnin eru óendanlega mikilvæg.  Því betur sem við hlúum að börnunum þeim mun  færri börn lenda afvega og þannig sparar samfélagið óendanlega mikla fjármuni.  Börn í hinum samsettu fjölskyldum virðast  í mestri hættu enda hlutfall barna sem lenda afvega hærra í þeim hóp.  Valgerður, Þú átt skilið Fálkaorðuna fyrir góða vinnu við að vekja athygli á þessum þörfu málum.

Gísli Gíslason, 5.12.2007 kl. 23:42

2 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Takk Gísli -   Þér er líka alveg óhætt að klappa sjálfum þér á bakið!

Valgerður Halldórsdóttir, 6.12.2007 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband